Á morgun klukkan 20 býður ÍBV-Íþróttafélag bæjarbúum til samsætis í Höllinni. Tilefnið er að ÍBV er að verða Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Fulltrúi frá ÍSÍ kemur og veitir viðurkenninguna og farið verður yfir hvað felst í því að vera fyrirmyndarfélag. Plaggið sem er uppá 84 síður verður svo aðgengilegt hér á síðunni í framtíðinni. Hægt er að nálgast blað sem gefið var út af þessu tilefni
hér. Við vonumst til að sjá sem flesta Eyjamenn í Höllinni á morgun (fimmtudag).