Sísí Lára valin í lokahóp U-19.

25.mar.2012  12:03
Landslið Íslands skipað leikmönnum U-19 ára tekur þátt í milliriðli Evrópumóts landsliða nú um mánaðarmótin í Hollandi.  Þar leikur liðið gegn heimastúlkum, Rúmenum og Frökkum.
Ólafur Þór Guðbjörnsson valdi Sigríði Láru Garðarsdóttur í lokahópinn en liðið fer utan 29.mars og kemur til baka 6.apríl.
Það kemur gríðarlega á óvart að hvorki Svava Tara Ólafsdóttir né Sóley Guðmundsdóttir skildu hvorugar vera valdar í hópinn.
 
ÍBV óskar Sísí Láru innilega til hamingju með þennan árangur.