Þrjár frá ÍBV í U-18 og ein í U-20.

16.mar.2012  09:11
Þær Drífa Þorvaldsdóttir, Berglind Dúna Sigurðardóttir og Svava Tara Ólafsdóttir hafa allar verið valdar til æfinga með landsliði Íslands U-18 ára.  Æfingarnar fara fram í Reykjavík dagana 21-25.mars.
Þjálfarar liðsins eru Inga Fríða Tryggvadóttir og Halldór Harri Kristjánsson.
Þá var Drífa einnig valin til æfinga með U-20 ára landsliðinu sem er frábær árangur hjá Drífu sem er aðeins 18 ára. Liðið mun æfa alla næstu viku í Reykjavík en þessar æfingar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni  HM sem fram fer í  Tyrklandi um páskana.
Þjálfarar liðsins eru Guðmundur Karlsson og Halldót Harri Kristjánsson.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.