Fimm leikmenn ÍBV hafa verið valdar í úrtakshóp U-16 ára landsliðs Íslands í handbolta. Þær Erla Sigmarsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir, Díana Magnúsdóttir, Sóley Haraldsdóttir og Sandra Sigurðardóttir voru allar valdar í hópinn. Æfingarnar fara fram í Garðabæ dagana 23-25.mars. Þjálfarar hópsins eru þær Díana Guðjónsdóttir og Unnur Sigmarsdóttir.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.