Elísa Viðarsdóttir var valin aftur í byrjunarlið Íslands eftir að hafa átt mjög góðan leik gegn Kínverjum þar sem hún spilaði allan leikinn í 1-0 sigri. Sigurður Ragnar Eyjólfsson var mjög ánægður með frammistöðu Elísu og valdi hana því á ný í byrjunarliðið sem mætir Dönum í síðasta leik mótsins.
Þá var Svava Tara Ólafsdóttir í byrjunarliði U-19 ára liðsins sem tapaði fyrir Noregi 2-1. Svava Tara spilaði í 75 mínútur. SÍsí Lára kom inná og spilaði síðustu 20 mínúturnar. Síðasti leikur liðsins er á morgunn gegn Englendingum.