ÍBV og Kaupás gera samstarfssamning

05.mar.2012  09:47

Á dögunum skrifuðu forsvarsmenn ÍBV-Íþróttafélags og Kaupáss undir samstarfssamning til tveggja ára. Kaupás kemur með samningi þessum myndarlega að starfi knattspyrnudeildar ÍBV auk þess sem að fyrirtækið styrkir barna og unglingastarf félagsins.


Kaupás rekur tvær verslanir í Eyjum. Annarsvegar Krónuna og hinsvegar Kjarval. Með samningi þessum vill Kaupás sýna það í verki hversu mikilvægt það er að styðja við öflugt æskulýðs- og íþróttastarf og á það vel við í þessu tilfelli þar sem íþróttastarf í Eyjum er með blómlegasta móti.