Mfl og 2.flokkur léku um helgina í kvennafótboltanum.

28.feb.2012  08:47
Meistara og 2.flokkur ÍBV í kvennafótbolta lék um helgina á höfuðborgarsvæðinu.  Á föstudag lék meistaraflokkur gegn KR og sigraði 3-1 eftir að hafa komist í 3-0.  Mörk ÍBV í leiknum gerðu Berglind Björg, Danka og Kristín Erna. 
Þá lék 2.flokkur liðsins tvo leiki.  Á föstudag var leikið gegn mfl.Fram og sigruðu Fram stúlkur 6-0.  Á laugardag lék svo liðið gegn Grindavík og sigraði 6-0.  Mörkin gerðu Bryndís 4, Ármey 1 og Hrafnhildur 1.
Næstu leikir liðsins verða helgina 9-11.mars.