Þrir úr ÍBV í U-21.

22.feb.2012  13:10
Eyjólfur Sverrisson þjálfari U-21 landsliðsins í knattspyrnu valdi þrjá leikmenn ÍBV í hópinn sem mætir Aserbaisjan í lok mánaðarins.  Eyjólfur valdi þá Þórarinn Inga Valdimarsson, Guðmund Þórarinsson og Brynjar Gauta Guðjónsson frá ÍBV.  Eyjólfur hafði einnig valið Eið Aron Sigurbjörnsson en Eiður varð að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Þess má geta að Tómas Ingi Tómasson er aðstoðarþjálfari hjá þessu U-21.árs landsliðinu.
 
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.