3.flokkur kvenna stóð sig frábærlega í Futsal sem er innanhúsíslandsmótið í fótbolta. ÍBV gerði sér lítið fyrir og lenti í öðru sæti. ÍBV byrjaði á því að sigra sinn riðil sem leikinn var í janúar að Hlíðarenda. ÍBV lék fjóra leiki og sigraði þá alla með markatöluna 11-2. Liðið lék gegn Val, Þrótti, Snæfellsnesi og Haukum. Í milliriðli sigraði ÍBV lið Tindastóls 4-0 og lið Fylkis 7-0. Í undanúrslitum lék liðið gegn Snæfellsnesi og sigraði 4-0.
Í úrslitaleik mættust því ÍBV og Breiðablik. Blikar sigruðu 1-0 eftir mjög jafnan leik en sigurmarkið kom 2.mínútum fyrir leikslok.
ÍBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.