ÍBV var heldur betur í sviðsljósinu á ársþingi KSÍ um helgina. Kvennalið félagsins hlaut háttvísiverðlaun KSÍ fyir heiðarlega framkomu á velli. Þá hlaut karlalið félagsins Drago styttuna en hún er veitt því liði sem þótti leika heiðarlegustu knattspyrnuna.
Grasrótarverðlaun fóru einnig til félagsins en þau verðlaun hlaut félagið fyrir Pæjumótið sem hefur verið í örum vexti og þykir orðið eitt glæsilegasta knattspyrnumót landsins. Grasrótarverðlaunin eru gríðarleg viðurkenning fyrir þá fjölmörgu sjálfboðaliða sem leggja verkefninu lið.
Stjórn og Unglingaráð ÍBV óskar öllum félagsmönnum til hamingju með þennan glæsilega árangur.