5 frá ÍBV á landsliðsæfingar.

06.feb.2012  15:25
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur skorið æfingahóp sinn niður í 20 leikmenn.  ÍBV á tvo fulltrúa þar, þær Elísu Viðarsdóttur og Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur.  Hópurinn undirbýr för sína á Algarve Cup í Portúgal um næstu mánaðarmót.
Þá hefur Ólafur Þór Guðbjörnsson valið æfingahóp U-19 ára landsliðsins fyrir næstu helgi.  Þar  á ÍBV þrjá fulltrúa þær  Svövu Töru Ólafsdóttur, Sigríði Láru Garðarsdóttur og Sóleyju Guðmundsdóttur sem var að spila sinn fyrsta leik um síðustu helgi eftir að hafa lent í slæmum meiðslum síðasta sumar.  Svava Tara og Sísí Lára eru tvær af átta stúlkum af yngra ári í hópnum sem er frábær árangur hjá þeim en alls eru 22 stúlkur valdar í æfingahópinn en 18 stúlkur verða svo valdar í lokahópinn sem einnig fer til Algarve með A-landsliðinu og spilar þar þrjá leiki.
 
ÍBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þennan árangur.