Elísa æfir með Posdam.

03.feb.2012  16:52
Varnarmaðurinn Elísa Viðarsdóttir er nú í heimsókn hjá Margréti Láru systur sinn í Þýskalandi þessa dagana.  Elísu var í leiðinni boðið að æfa með einu besta félagsliði heims Posdam sem nýverið fékk Margréti Láru til liðs við sig.  Elísa fór utan á mánudag eftir að hafa staðið sig vel á æfingum með A-landsliðinu og kemur til baka á fimmtudag til að taka þátt í næstu æfingahelgi með A-landsliðinu sem undirbýr sig af kappi fyrir Algarve mótið í byrjun mars.