Það verður mikið um að vera hjá ÍBV-íþróttafélagi um helgina. Samtals eru 11 hópar á ferðinni þannig að rútukostur félagsins dugar ekki til. Mikil vinna fer í að púsla saman hvenær og hvert þarf að keyra hópunum og síðan þarf að sækja og koma þeim í Þorlákshöfn. Það lítur út fyrir að næstu mánuðir verði þetta annasamir þar sem Íslandsmótið í handbolta stendur sem hæst, þá eru meistaraflokkarnir í fótbolta á fullu í Faxaflóamóti og fótbolti.net mótinu. Þá er Faxaflóamót yngri flokka í fótbolta í fullum gangi þannig það er líf og fjör í félaginu þessa stundina sem ávallt.