Sigurður Grétar Benónýsson var valin til æfinga með U-17 ára landsliði Íslands í fótbolta. Æfingarnar fara fram um helgina á Reykjavíkursvæðinu. Þjálfarar liðsins eru Gunnar Guðmundsson og Freyr Sverrisson.
Þá voru Benjamín Elí Óskarsson og Hallgrímur Þórðarson valdir til æfinga með úrtakshóp U-16 ára landsliðsins. Þar verða æfingar einnig um helgina á Reykjavíkursvæðinu. Þjálfari er Freyr Sverrisson.
ÍBV óskar þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.