ÍBV íþróttafélag var heldur betur í sviðsljósinu í gærkvöldi þegar útnefning á íþróttamanni Vestmannaeyja var haldin í Íþróttamiðstöðinni. Tryggvi Guðmundsson var valin íþróttamaður Vestmannaeyja enda búinn að eiga frábæran ferill. Svava Tara Ólafsdóttir var valin íþróttamaður æskunnar en hún lék með U-17.ára landsliði Íslands í undanúrslitum Evrópumóts landsliða í knattspyrnu síðastliðið sumar. Þá voru fjölmargir landsliðsmenn úr röðum ÍBV-íþróttafélags heiðraðir fyrir árangur sinn.
ÍBV-íþróttafélag vill þakka Héraðsambandi ÍBV og öllum þeim eru mættu á þennan viðburð ógleymanlega kvöldstund.