Kvennafótboltinn á ferðinni um síðustu helgi.

10.jan.2012  08:47
Mfl.kvenna lék um helgina gegn íslandsmeisturum Stjörnunnar í Faxaflóamótinu.  Okkar stúlkur áttu ekki möguleika gegn sterku liði íslandsmeistarana en leikurinn endaði 5-0.  Á sunnudag léku stúlkurnar svo fyrstu tvo leiki sína í Futsal.  Fyrri leikurinn var gegn Fjölni sem IBV sigraði 2-0 og síðan sigruðu stúlkurnar lið HK/Vikings 9-0.  Um næstu helgi eru svo síðari tveir leikirnir í riðlinum gegn Þrótti og Fylki.  Þá lék 2.flokkur félagsins gegn HK/Viking í Faxaflóamótinu og lauk þeim leik með jafntefli 2-2.  María Davis skoraði bæði mörk IBV, það síðara með stórglæsilegu skoti af 25m færi.