Klukkan 17.00 í dag verður kveikt upp í áramótabrennu ÍBV. Brennan er í Hásteinsgryfjunni og í kjölfarið á brennunni verður vegleg flugeldasýning á vegum Björgunarfélags Vestmannaeyja. Hugsanlega verður þetta síðasta brennan á þessum stað þar sem fyrirhugað er að reisa hótel í gryfjunni á nýju ári.