Þrjár frá IBV valdar í undirbúningshóp A-landsliðsins.

21.des.2011  16:03
Þær Elísa Viðarsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir voru allar valdar í 40.manna undirbúningshóp A-landsliðs Íslands í knattspyrnu fyrir árið 2012.  Þetta er í fyrsta skipti sem Elísa er valin en hinar hafa áður verið með hópnum þá sérstaklega Berglind.
Það kemur á óvart að framherjinn Kristín Erna Sigurlásdóttir er ekki valin að þessu sinni en vonandi verður hún valin í æfingahópinn sem kemur saman í janúar og febrúar en sá hópur mun vera mest megnis valin úr þeim leikmönnum sem leika hér á landi.
 
IBV óskar stúlkunum innilega til hamingju með þennan árangur.