Föstudaginn 30. des. hyggur smíðaklúbburinn Þumalputtar ásamt ÍBV á að halda styrktarmót í knattspyrnu fyrir markahrókinn Steingrím Jóhannesson.
Öll innkoma af mótinu rennur óskipt til Steingríms sem berst við krabbamein.
Sjá meira..
Keppt verður í Eimskipshöllinni (höllinni skipt í 4 velli), 5 manna lið, leiktími 1x10 mínútur, og hefst mótið klukkan 17:00. Fyrirkomulagið og mótslok fara eftir þátttöku.
Hvetjum fyrirtæki, félög og vinahópa að taka þátt og styðja þétt við bakið á markahróknum.
Skráningar í mótið sendist á netfangið odi@eyjar.is
Kostnaður á lið að lágmarki krónur 10.000,- (AÐ SJÁLFSÖGÐU HEIMILT AÐ GREIÐA HÆRRA ÞÁTTTÖKUGJALD !!!)
Þátttökugjald og frjáls framlög leggjast inná reikning 0582-15-82639 kt. 140673-4639