Markmannsnámskeið í knattspyrnu.

16.des.2011  09:01
 Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður og markvörður Pepsi deildar liðs FH verður með markvarðarnámskeið í Vestmannaeyjum 21. desember.
Æfingarnar verða fjórar yfir daginn í knattspyrnuhúsinu. Fyrsta æfingin er frá kl.11.30-12.20. Æfing tvö verður frá kl.14-14.50. Æfing 3 og 4 verða fra 17.00-18.40 með 10.mín pásu á milli.
Æfingar eru ekki líkamlega erfiðar, þannig að engin ætti að verða þreyttur eftir daginn. Hins vegar eiga allir vonandi eftir að bæta sig sem markverðir, þar sem að farið verður í alla helstu þætti markvörslunar.



Námskeiðið kostar 8000.kr. Innifalið í þátttöku er 25% afsláttur af markmannsvörum hjá Jóa útherja.

Nánari upplýsingar og skráning eru á markmannsnamskeid@gmail.com og í síma 7738037