Þær Berglind Dúna Sigurðardóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir hafa verið valdar til æfinga með U-18.ára landsliði Íslands í handbolta. Æfingarnar fara fram nú um helgina og milli jóla og nýárs. Þjálfarar liðsins eru Inga Fríða Tryggvadóttir og Halldór Harri Kristjánsson.
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.