Þeir Kristinn Skæringur Sigurjónsson og Sigurður Grétar Benónýnsson voru valdir til æfinga um helgina með landsliði Íslands í knattspyrnu U-17.ára. Æfingarnar fara fram föstudag, laugardag og sunnudag á Reykjavíkursvæðinu. Þjálfari er Gunnar Guðmundsson og honum til aðstoðar er Freyr Sverrisson.
IBV óskar þessum efnilegu leikmönnum til hamingju með þennan árangur.