5 stúlkur frá IBV á leið á landsliðsæfingar hjá U-16

08.des.2011  13:34
Þær Erla Sigmarsdóttir, Sandra Dís Sigurðardóttir, Sóley Haraldsdóttir, Arna Þyrí Ólafsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir voru allar valdar til æfinga með U-16.ára landsliði Íslands í handbolta.  Liðið mun æfa dagana 27-29.des á höfuðborgarsvæðinu.
Þjálfarar eru Díana Guðjónsdóttir og Unnur okkar Sigmarsdóttir.
 
IBV óskar þessum efnilegu stúlkum innilega til hamingju með þennan árangur.