Í dag komu forsvarsmenn árganganna 1982-84 færandi hendi í félagsheimili ÍBV. Þannig er mál með vexti að 4. flokkur karla var öflugur á þessum tíma. Bæði á vellinum og í fjáröflunum. Það sem eftir var í sjóð var afhent í dag að upphæð 70.000 krónur sem verður nýtt til kaupa á búnaði í Eimskipshöllina. Félagið þakkar þessum strákum kærlega fyrir framlagið.