Boltinn er farinn að rúlla hjá Meistaraflokki kvenna. Liðið er nú búið að leika þrjá æfingaleiki. Fyrsti leikurinn var gegn liði ÍA. Skagastúlkur sigruðu í miklum markaleik 6-5. Mörk IBV skoruðu, Hlíf, Kristín, Svava Tara, Berglind og Sísí. Daginn eftir var leikið gegn KR og þar sigraði IBV 4-0. Mörkin í þeim leik gerðu Berglind 2, Kristín og Hlíf.
Um síðustu helgi lék liðið gegn Aftureldingu og sigraði 2-0 með mörkum frá Svövu Töru og Bergrúnu.
Næstu leikir eru áætlaðir 16. og 17.des.