Næstkomandi laugardag verður uppskeruhátíð sumarsins hjá ÍBV íþróttafélagi. Húsið opnar klukkan 19.30 og hefst borðhald stundvíslega klukkan 20.00. Margt girnilegra rétta verða á boðstólnum hjá Einsa Kalda og má sjá matseðil kvöldsins með því að smella á ,,meira". Þá verður dagskráin keyrð stíft og að dagskrá lokinni ætlar Daddi að bjóða uppá ,,Happy hour".Allir sem hafa komið að starfi félagsins með einum eða öðrum hætti eru boðnir velkomnir í Höllina. Hægt er að nálgast miða í Týsheimilinu til hádegis á föstudaginn.
Matseðill
lolló-rossó og róminbeð með melónu mangó mandarínum og stökku beikoni
Sjávarréttar fajitas með ruccola steiktu grænmeti og myntusósu
Gratineraður skötuselur með sítrónugrasi, sítrónumelissu og sítrussósu
Kjúklingabitar með tandorridressingu borið fram með grænmetiscous-cous
Brakandi purusteik bökuð í kanil og kóriander B.B.Q. sósu ásamt djúpsteiktum kartöflum í tempura
Kóriander-basiliku og kumminkryddað lambaprime ásamt kartöflu/ostasalati og kóriander kryddaðri ostasósu