Góður sigur hjá 2.flokki kvenna.

15.júl.2011  20:00
Stúlkurnar í 2.flokki gerðu góða ferð til Reykjavíkur í gær er þær mættu liði Fjölnis í Grafarvoginum.  Okkar stúlkur voru sterkari í fyrri hálfleik en tóks ekki að skapa sér mikið af færum.  Í seinni hálfleik vorum við mun betri aðilinn í leiknum og á 70.mínútu skoraði Bjartey Helgadóttir glæsilegt mark úr aukaspyrnu af 30.metra færi.  Á síðustu 10.mínútum leiksins bætti IBV við tveimur mörkum frá Bergrúnu og Katrínu.  Lokatölur því 3-0 fyrir IBV.