Stúlkurnar okkar unnu stórglæsilegan sigur á Valsstúlkum á Hásteinsvelli í gær. Lokatölur voru 1-0 fyrir IBV sem börðust sem sannar Eyjastúlkur í leiknum. Fyrri hálfleikur var markalaus en IBV vildi fá vítaspyrnu undir lok hálfleiksins. Í seinni hálfleik héldu okkar stúlkur áfram sinni baráttu sem skilaði árangri á 63.mínútu þegar Danka skallaði boltann í net Valsstúlkna. Frammistaða stúlknana skilaði IBV aftur í toppbaráttuna en liðið er nú 3.stigum á eftir Val og 5.stigum á eftir Stjörnunni.
Næsti leikur liðsins er á sunnudag kl. 16.00 gegn Þór/KA á Hásteinsvelli.
Við hvetjum alla til að mæta og hvetja stúlkurnar til sigurs.
Áfram IBV.