Tveir úr IBV í úrtakshóp U-15 í handbolta.

30.maí.2011  14:22
Tveir drengir úr IBV hafa verið valdir í úrtakshóp U-15 í handbolta.  Guðmundur Tómas Sigfússon og  Kristinn Skæringur Sigurjónsson voru valdir til æfinga með hópnum um næstu helgi.  Æft verður fjórum sinnum og endað svo með því að horfa á landsleik Íslands og Austurríkis á sunnudag.
 
IBV óskar þessum drengjum innilega til hamingju með þennan árangur.