Strákarnir halda til Keflavíkur í næstu umferð Pepsi deildarinnar, það er alltaf gaman að koma til Keflavíkur þó svo að úrslitin láti yfirleitt á sér standa , síðustu tvö ár höfum við spilað lokaleiki okkar í Keflavík og markatalan er 10-2 Keflavík í vil. Þannig að það er nokkuð ljóst að við þurfum að byrja á því að láta varnarleikinn smella áður en við getum byrjað að hugsa um að sækja.
Keflvíkingar hafa byrjað mótið með miklum sóma og sitja í 2 sæti deildarinnar með 8 stig 1 stigi meira en ÍBV, þannig að þetta er gríðalega mikilvægur leikur uppá framhaldið hjá okkar mönnum. Tryggvi Guðmundsson snýr til baka úr banni, þannig að Heimir ætti að hafa fleiri valmöguleika fram á við.
Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 20:00 og er sýndur í beinni á Stöð 2 Sport