ÍBV færði Valsmönnum afmælisgjöf

12.maí.2011  10:28

Glerlistaverk eftir Bjarney Sif Ólafsdóttur

Í gær átti Knattspyrnufélagið Valur 100 ára afmæli. ÍBV mætti afmælisfélaginu og fyrir leik afhentu forráðamenn ÍBV þeim rauðklæddu afmælisgjöf. Gjöfin er glerlistaverk unnið af Bjarney Sif Ólafsdóttur. ÍBV ákvað að vera ekki of gjafmildir í gær, því tókum við með okkur öll stigin sem í boði voru til Eyja. ÍBV óskar Valsmönnum til hamingju með afmælið sem að var virkilega vel heppnað.