Vetrarlok ÍBV á laugardaginn

11.maí.2011  12:48

Húsið opnar kl: 19.30

Næstkomandi laugardag verða vetrarlok ÍBV íþróttafélags haldin í Höllinni. Húsið opnar kl: 19.30 og hefst borðhald stundvíslega klukkan 20.00. Hægt er að nálgast miða á hófið í Týsheimilinu til klukkan 16 á morgun, fimmtudag. Boðið verður uppá glæsilegt hlaðborð að hætti Einsa Kalda. Athugið að það er frítt á hófið fyrir alla þá sem hafa komið að starfi ÍBV íþróttafélags í vetur. Hægt er að sjá matseðilinn með því að smella á ,,Meira".

Matseðill

Sumarsalat með lolló-rossó ruccola  hunangsvinagrette og ostum

Djúpsteikar humarbollur með kóriander og chili borið fram með hrisgjónum og kryddjurtardressingu

Sjávarréttar fajitas með hörpuskel rækjum og humar

Pönnusteiktur skötuselur með bökuðum smátómötum bazil og mozzarella borið fram í piparostasósu

Kjúklingaspjót borið fram á grænmetissalati ásamt tandorridressingu

Bökuð lambalæri með sætkartöflugratine steiktu grænmeti og portóbelló-sveppasósu