Kjalnesingar verða mótherjar okkar í 32ja liða úrslitum bikarkeppninar. Kumho Rovers er reyndar þeirra rétta nafn, en undanfarin ár hafa þeir tekið þátt í bikarkeppninni undir merkjum Kjalnesinga.
Heimavöllur þeirra er gervigrasið í Safamýrinni, þannig strákarnir okkar fá þá ánægju að spila tvisvar sinnum í sumar á gervigrasi, en eins og allir vita þá spila Stjarnan heimaleiki sína á gervigrasi.
ÍBV er sterkari aðilinn á pappír en þetta er bikar og það getur allt gerst ef menn mæta ekki tilbúnir í leikinn.
Leikurinn fer fram miðvikudaginn 25. maí kl 19:15.