Eyjamenn hittast á Spot fyrir leikinn gegn Val.
Eyjamenn ætla að blása í herlúðra fyrir leik liðsins gegn Val á miðvikudaginn. Leikurinn er hluti af afmælishátíð Vals og verður því hörkustemmning á vellinum.
Stuðningsmenn ÍBV ætla því að hittast á Spot í Kópavogi kl. 18:00 á miðvikudaginn og hita vel upp fyrir leikinn.
20% afsláttur af leikjamatseðli og kaldur á tilboði.
Heimir Hallgrímsson þjálfari mætir og kynnir liðið kl. 18:30.
Leikurinn hefst síðan kl. 20:00 á Vodafonevellinum.
Við minnum svo á ÍBV kvöldið á Spot laugardaginn 21. maí