Í dag, 1. maí er Knattspyrnufélagið Týr 90 ára. Af þessu tilefni settu nokkrir Týrarar merki félagsins utan á klúbbhús ÍBV. Aðalstjórn ÍBV þakkar fyrir gjöfina og mun í framhaldi funda um málið. Aðalstjórn ÍBV minnir á í þessari umræðu að félagið er runnið undan rifjum tveggja félaga og munum við ekki mismuna þeim á nokkurn hátt í þessum efnum. Rétt er að geta þess að merkið sem nú er komið upp fær að standa þar sem það er í dag, afmælisdaginn en verður svo tekið niður á morgun og mun aðalstjórn fjalla um málið á næsta stjórnarfundi.