Í morgun undirrituðu fulltrúar ÍBV, Eyjatölva og Flugger samstarfssamning út árið 2012. Flugger og áður Harpa og ÍBV hafa átt í löngu og góðu samstarfi, ekki verður breyting á því næstu árin. Þá eru Eyjatölvur umboðsaðili fyrir Flugger í Eyjum.
Það voru þeir Haraldur Bergvinsson framkvæmdastjóri Eyjatölva, Vigfús Gíslason framkvæmdastjóri Flugger sem skrifuðu undir fyrir þeirra hönd. Tryggvi Már Sæmundsson framkvæmdastjóri ÍBV skrifaði undir fyrir hönd ÍBV.