ÍBV íþróttafélag og Eimskip skrifuðu nú um helgina undir 5 ára samstarfssamning. Samningur þessi er mjög mikilvægur fyrir ÍBV og rennur hann óskiptur til barna og unglingastarfs félagsins. ÍBV hefur á síðustu mánuðum lagt mikinn metnað í að styrkja barna- og unglingastarfið og létta undir með foreldrum sem eru með börn í íþróttum hjá félaginu.
Þessi samningur gerir það að verkum að enn eitt árið getum við boðið óbreytt verð á æfingagjöldum sem eru nú með þeim lægstu á landinu.
Eimskip er eitt af öflugustu fyrirtækjum landsins og er mikill fengur í þessu samstarfi fyrir ÍBV íþróttafélag sem stefnir áfram að því að hlúa vel að barna- og unglingastarfi félagsins.
Við sama tilefni undirritaði Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip samning við knattspyrnudeild karla um áframhaldandi samstarf.