Íslenska u-17 ára kvennalandsliðið í fótbolta byrjar vel í sínum riðli í milliriðlum Evrópumótsins í fótbolta. Þær íslensku sigruðu lið Englands 2-0. Báðar voru eyjastúlkurnar í byrjunarliðinu og stóðu vel fyrir sínu.
Næsti leikur er á mánudag gegn Pólverjum en riðillinn er leikinn í Póllandi. Aðeins eitt lið fer áfram í lokakeppnina en fjórða liðið í riðlinum er lið Svía.