Fjölnotahúsið að taka á sig endanlega mynd

25.okt.2010  14:17

Reisugildi haldið á föstudaginn

Nú er loka spretturinn hafinn í frágangi fjölnota íþróttahúss sem nú er risið vestan megin við Týsheimilið. Gera má ráð fyrir að æfingar geti hafist í lok næsta mánaðar. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikil lyftistöng húsið verður fyrir allt íþróttastarf hér í Eyjum. Þegar að ljósmyndara ÍBV bar að garði nú síðasta föstudag voru starfsmenn Steina og Olla að halda reisugildi.