Vel gengur að klæða fjölnota íþróttahúsið sem nú rís vestan við Týsheimilið. Áætlað er að það verði tilbúið nú í desember mánuði. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikil bylting húsið kemur til með að vera fyrir bæði knattspyrnufólk sem og fyrir frjálsíþróttafólk. Ljósmyndari ÍBV skellti sér út og smellti einni mynd af framkvæmdunum.