Sísí Lára og Svava Tara spiluðu allan tímann í stórsigri.

23.sep.2010  12:10
Þær Sísí Lára og Svava Tara eru nú með U-17 ára landsliðinu í Búlgaríu þar sem leikinn er riðill Íslands í undankeppni evrópumóts landsliða.  Liðið hefur lokið tveimur leikjum og gjörsigrað þá báða.  Fyrst lið Litháen 14-0  þar lék Sísí Lára allan leikinn en Svava lék ekki með.  Í öðrum leiknum léku þær báðar allan tímann er Ísland sigraði heimastúlkur 10-0.  Liðið er því öruggt í milliriðill mótsins.  Þær eiga eftir að leika einn leik í riðlinum gegn Ítalíu.