IBV stelpurnar náðu þeim frábæra árángri í gær að vinna sér sæti í úrvalsdeild á ný. Okkar stúlkur léku seinni leikinn gegn Keflavík hér á heimavelli í umspili um sætið. IBV sigraði mjög örugglega 4-1 með mörkum frá Eddu Maríu 2, Lerato 1 og kristín Erna 1. Eyjastelpur spiluðu leikinn af miklu öryggi með þær Rose Jijana og Nönnu Rut fremstar í flokki.
Við óskum liðinu innilega til hamingju með þetta afrek þeirra.