Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 landsliðsins í knattspyrnu hefur valið Þórarinn Inga Valdimarsson í hópinn fyrir næstu átök liðsins. Liðið heldur á næstu dögum til Tékklands til að leika þar við heimamenn í síðasta leik riðilsins í evrópukeppninni. Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins og hefur tryggt sér umspilsleiki fyrir lokakeppnina.