Stelpurnar komnar í undanúrslit.

09.júl.2010  18:54
Kvennalið IBV er komið í undanúrslit bikarkeppni KSI eftir 2-0 sigur á Haukum á Hásteinsvelli í dag.  Eyjaliðið var mikið mun sterkara allan leikinn og leiddi 1-0 í hálfleik með góðu marki frá Söru Rós eftir góðan undirbúning frá Þórhildi.  Í seinni hálfleik skoraði Hlíf annað mark fyrir IBV eftir frábæran undirbúning frá Jóhönnu Svövu.  2-0 urðu lokatölur leiksins en hefðu getað orðið stærri. Á þriðjudag verður dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum og verður spennandi að fylgjast með hver verður andstæðingur IBV þar.