Ágæti viðtakandi.
Undanfarin ár hafa foreldrar eða forráðamenn iðkennda hjá ÍBV-íþróttafélagi tekið að sér gæslustörf í Herjólfsdal á Þjóðhátíð. Þessu framlagi hefur verið mætt með niðurfellingu æfingagjalda. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir. Félagið bíður foreldrum og forráðabörnum iðkennda sama fyrirkomulag við framkvæmd Þjóðhátíðar 2010.
Þeim sem áhuga hafa á þátttöku í gæslustörfum á Þjóðhátíð eru með bréfi þessu boðaðir til fundar í Týsheimilinu þriðjudaginn 13. júlí kl. 17.30.
Virðingarfyllst
F.h. Þjóðhátíðarnefndar.
Páll Scheving Ingvarsson
Formaður