5.flokkur drengja lék á N-1 móti KA um síðustu helgi. IBV tefldi fram 5.liðum með 46.drengjum innanborðs. Leikið var í 28.liða keppnum og stóðu IBV drengir sig vel. B-lið félagsins lék sjálfan úrslitaleikinn gegn FH. Leiknum lauk með jafntefli 1-1 og var því gripið til vítaspyrnukeppni sem var einnig jöfn, en FH vann í bráðabana. Daníel Griffin var kosin besti leikmaður B-liða keppninnar sem er frábær árangur.
IBV óskar drengjunum til hamingju.