Því miður verður bikarleikurinn hjá stelpunum á föstudag að fara fram kl. 16.00 vegna hinna ýmsu ástæðna. Það er að mörgu að hyggja þar sem spinna þarf saman leikjadagskrá meistaraflokks, 2.flokks og 3.flokks. 2.flokkur er sem stendur í efsta sæti A-deildar og voru í dag að komast áfram í bikarnum eftir 6-2 sigur á Stjörnunni. Mörk IBV gerðu, Kristín Erna 4, þá gerðu Eygló Dís og Bjartey sitthvort markið hvor.