Eiður Aron semur við ÍBV til 2013

08.jún.2010  22:00
Hinn ungi og efnilegi Eiður Aron Sigurbjörnsson leikmaður ÍBV í knattspyrnu samdi í dag við knattspyrnulið ÍBV til 3 ára eða út 2013. Eiður er búinn að vera fastamaður í liði ÍBV undan farinn 2 ár þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri.
Ég sé fram á að spila hér um óákveðna framtíð og vildi þess vegna framlengja samningnum. Ég er mjög ánægður hjá ÍBV, kvarta ekki enda hef ég fengið að spila mikið. Ég stefni auðvitað á að komast í atvinnumennsku, eins og svo margir aðrir en það kemur bara í ljóst hvort af því verður eða ekki,“ sagði Eiður í stuttu spjalli við Eyjafréttir eftir að hafa skrifað undir.