ÍBV og Íslandsbanki framlengja samning

31.maí.2010  11:07
ÍBV-íþróttafélag og Íslandsbanki skrifuðu í gær undir áframhaldandi samstarfssamning. Íslandsbanki hefur stutt myndarlega við bakið á ÍBV í gegnum árin sem einn af stærri styrktaraðilum félagsins og verður engin breyting þar á næstu árin. Samstarf ÍBV og Íslandsbanka hefur verið farsælt og ánægjulegt um langt skeið og er mikilvægt að halda samstarfinu áfram í að efla félagið í því mikla starfi sem fer fram innan þess.
Samningurinn tekur yfir starfsemi félagsins frá þeim elstu og til þeirra yngstu, en þó með aðaláherslu á yngri flokka starfs félagsins.  Allir yngri flokkar félagsins í knattspyrnu og handknattleik verða merktir Íslandsbanka framan á keppnistreyjum eins og undanfarin ár. Samningurinn gildir til tveggja ára.