Vorverkin að komast á fullt hjá ÍBV

10.maí.2010  20:56
Þá er allt að gerast í kringum félagsheimili ÍBV. Hásteinsvöllur er orðinn iðagrænn og búið að skipta um járn á varamannaskýlinum. Einnig er góður gangur í byggingu fjölnota íþróttahússins og er stálið í húsið komið á Eyjuna. Ljósmyndari ibvsport.is smellti nokkrum myndum af framkvæmdunum og má sjá þær með því að smella á "meira".